Grunnmenntaskólinn
Ert þú með stutta skólagöngu að baki? Viltu byrja aftur í skóla?
Þá er Grunnmenntaskólinn nám fyrir þig. Tilvalinn grunnur að meira námi. Grunnmenntaskólinn er 300 kennslustundir fyrir fólk 20 ára og eldri. Lögð er áhersla á fjölbreyttar kennsluaðferðir og einstaklingsmiðað nám.
Markmið
- Að byggja upp grunn í íslensku, ensku, stærðfræði og tölvum
- Að auka sjálfstraust til náms
- Að þjálfa sjálfstæð vinnubrögð
- Að þjálfa samvinnu í verkefnagerð
- Að styrkja stöðu á vinnumarkaði
Námsgreinar
- Íslenska
- Stærðfræði
- Enska
- Tölvur
- Sjálfsstyrking
- Námstækni
- Framsögn
- Færnimappa
Kennslufyrirkomulag
Í boði er nám á daginn eða á kvöldin. Kenndar eru 5 kennslustundir í senn. Í dagskóla er kennt alla virka daga en í kvöldskóla er kennsla tvö virk kvöld í viku og annan hvern laugardag. Engin lokapróf eru tekin en námsmat fer fram með verkefnavinnu, æfingum og símati.
Kennt er samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Mennta– og menningamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til eininga á framhaldsskólastigi.
Verð
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins niðurgreiðir kennslu í Grunnmenntaskólanum svo hlutur nemenda í námsgjöldum er 53.000 krónur. Hægt er að sækja um styrk vegna námsgjalds til fræðslusjóða stéttarfélaga.
Nánari upplýsingar
Joanna Ewa Dominiczak
Sími 580 1800
joanna@mimir.is
