Færni í ferðaþjónustu I og II
Þjónusta við ferðamenn
Færni í ferðaþjónustu er 160 kennslustunda nám fyrir fólk 20 ára og eldra. Námið byggist upp á bóklegu námi, vettvangsferðum og verkefnavinnu.
Markmið
- Að búa þátttakendur undir störf í ferðaþjónustu
- Að læra að veita góða þjónustu
- Að auka þekkingu á samfélagi og umhverfismálum
- Að þjálfa tölvunotkun til upplýsingaleitar og verkefnavinnu
- Að þjálfa sjálfstæð vinnubrögð og samvinnu
Námsgreinar
- Þjónusta
- Samfélag- og staðarþekking
- Umhverfismál og ferðaþjónusta
- Enska
- Tölvur og upplýsingatækni
- Skyndihjálp og öryggismál
Kennslufyrirkomulag
Kennt er alla virka daga, fimm kennslustundir í senn. Færni í ferðaþjónusti I og Færni í ferðaþjónustu II eru kennd samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Mennta – og menningamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til framhaldsskólaeininga.
Verð
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins niðurgreiðir kennslu í Færni í ferðaþjónustu svo hlutur nemenda í námsgjöldum er 29.000 krónur. Hægt er að sækja um styrk vegna námsgjalds til fræðslusjóða stéttarfélaga.
Nánari upplýsingar
Joanna Ewa Dominiczak
Sími 580 1800
joanna@mimir.is
Rósa Steinunn Jónsdóttir
Sími 580 1800
rosa@mimir.is

