Grunnstoðir

Áttu erfitt með lestur og skrift en langar að takast á við krefjandi nám?


Þá gætu Grunnstoðir hentað þér. Grunnstoðir eru ætlaðar einstaklingum, 20 ára og eldri, sem hafa stutta skólagöngu að baki.  Námið er 395 kennslustundir, þar af 40 stundir í einkatímum hjá Davis lesblinduráðgjafa.


Markmið

  • Að  verða betri í lestri og skrift
  • Að nýta Davis tæknina í áframhaldandi námi
  • Að byggja upp grunn í íslensku, ensku, stærðfræði og tölvum
  • Að auka sjálfstraust til náms
  • Að þjálfa sjálfstæð vinnubrögð
  • Að styrkja stöðu á vinnumarkaði

 

Námsgreinar

  • Sjálfsstyrking
  • Davis lesblinduþjálfun
  • Íslenska
  • Enska
  • Stærðfræði
  • Tölvu- og upplýsingatækni
  • Framsögn og tjáning
  • Náms- og starfsráðgjöf
  • Færnimappa

Engin lokapróf eru tekin en námsmat fer fram með verkefnavinnu, æfingum og símati. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til framhaldsskólaeininga.
 

Kennslufyrirkomulag
Kennt er á dagtíma frá mánudegi til föstudags, fimm kennslustundir í senn. Davis lesblinduþjálfunin fer fram allan daginn í fimm virka daga. Kennt  eftir námsskrá frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins

Verð
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins niðurgreiðir námið svo hlutur nemenda í námsgjöldum er 115.000 krónur. Hægt er að sækja um styrk vegna námskeiðsgjalds til fræðslusjóða stéttarfélaga.


Nánari upplýsingar
Rósa Steinunn Jónsdóttir
Sími 580 1800
rosa@mimir.is

 

 


 

Senda



Þetta vefsvæði byggir á Eplica