Annað starfsnám
Viltu auka hæfni þína í starfi eða læra eitthvað nýtt?
Boðið er upp á nám sem er miðað að mismunandi starfssviðum, allt frá skrifstofustörfum til öryggisvörslu og vöruflutninga.
Við bjóðum starfsmönnum verslana upp á nám sem meta má til eininga í framhaldsskóla. Starfsmenn í matvælaiðnaði geta fræðst um matvælaöryggi og meðferð matvæla. Skólaliðar geta eflt færni sína til starfa í grunnskólum og þjónustuliðar færni sína í hreingerningum. Í fjölvirkja námi getur þú eflt leiðtogahæfileika þína á sviði iðnaðar-, framleiðslu- og þjónustu.

