Raunfærnimat í verslunarfagnámi

Hefur þú unnið verslunarstörf í 3 ár eða lengur?  Ertu orðin/n 23 ára?  Viltu bæta við formlega menntun þína á framhaldsskólastigi?


Verslunarfagnámi er ætlað að auka verslunarfærni og persónulega færni starfsfólks til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í  nútímaverslun.

Verslunarfagnám er skilgreint sem starfsnám á framhaldsskólastigi og er metið af mennta– og menningarmálaráðuneytinu sem 51 framhaldsskólaeining.

Raunfærnimat í verslunarfagnámi er mat og staðfesting  á þekkingu og reynslu  einstaklings út frá markmiðum í námsskrá verslunarfagnáms. Að loknu mati fá  þátttakendur í  raunfærnimati tækifæri til að ljúka námsleiðinni. 

Hægt er að skoða og prenta út kynningarbækling um Raunfærnimat í verlsunarfagnámi hérna að neðan.



Raunfærnimat


Senda



Þetta vefsvæði byggir á Eplica