Raunfærnimat í skrifstofugreinum

Hefur þú unnið skrifstofustörf í 5 ár eða lengur?  Ertu orðin/n 23 ára?  Viltu bæta við formlega menntun þína á framhaldsskólastigi?


Í raunfærnimati skrifstofugreina er lagt mat á reynslu og þekkingu miðað við námsskrá Skrifstofubrautar  I í Menntaskólanum í Kópavogi.

Skrifstofubrautin er hagnýtt 33 eininga nám á framhaldsskólastigi sem miðar að því að veita nemendum almenna þekkingu í greinum sem nýtast við krefjandi störf á skrifstofu. 

Að mati loknu fá þátttakendur staðfestingu á matinu og þeim, sem þess óska, er boðið að taka þá áfanga sem upp á vantar til að ljúka námsleiðinni.

 

Senda



Þetta vefsvæði byggir á Eplica