Raunfærnimat - Leikskólaliðabrú
Hefur þú unnið á leikskóla í 5 ár eða lengur? Ertu orðin/n 25 ára? Hefur þú ekki lokið formlegu námi á framhaldsskólastigi?
Í raunfærnimati fyrir starfsmenn leikskóla er lagt mat á reynslu og þekkingu í samanburði við námskrá leikskólaliða.
Leikskólaliðabrú er hagnýtt 30 eininga nám sem miðar að því að styrkja starfsmenn við umönnun, uppeldi og /eða menntun barna á leikskólaaldri. Nemendur útskrifast sem leikskólaliðar.
Þátttakendur í raunfærnimati fá staðfestingu á matinu og þeim, sem þess óska, er boðið að taka áfanga sem upp á vantar til að ljúka námsleiðinni. Matið getur leitt til styttingar náms á Leikskólaliðabrú hjá Mími-símenntun og Borgarholtsskóla. Nánari upplýsingar um námsbrautina má finna á www.mimir.is og www.bhs.is
