Hvað er raunfærnimat?

Býrð þú yfir hæfni sem þú vilt láta meta sem jafngildi náms?


Raunfærnimat er ferli þar sem metin er þekking og færni á ákveðnu sviði, svo sem reynsla af starfi, námi eða félagsstörfum. Staðfesting á færni er gefin út í lok ferlisins.

Markmið

  • að geta stytt nám í framhaldinu
  • að sýna fram á reynslu og færni í starfi / í atvinnuumsókn
  • að leggja mat á hvernig einstaklingur getur styrkt sig í námi / starfi


Raunfærnimat með hliðsjón af námsskrá veitir tækifæri til að fá metna reynslu og færni sem jafngilda námsáfanga svo að viðkomandi þurfi ekki að sækja nám í því sem hann þegar kann. Dæmi um slíkt er raunfærnimat á leikskólaliðabrú og í skrifstofugreinum.

Raunfærnimat með hliðsjón af færnikröfum ákveðinna starfsgreina veitir tækifæri til að fá metna reynslu og færni sem starfssviðið  krefst.  Dæmi um slíkt er raunfærnimat hjá þjónustufulltrúum í bönkum og raunfærnimat fyrir hljóðmenn sem starfa við upptökur, hljóðvinnslu eða mögnun. 

Hafðu samband við ráðgjafa Mímis ef þú hefur áhuga á raunfærnimati.

 

Senda



Þetta vefsvæði byggir á Eplica