Náms- og starfsráðgjöf á vinnustöðum
Viltu ráðleggingar sérþjálfaðra ráðgjafa við val á námsleiðum þér að kostnaðarlausu?
Mímir - símenntun býður upp á náms- og starfsráðgjöf á vinnustöðum, starfsmönnum og fyrirtækjum að kostnaðarlausu.
Ráðgjöf á vinnustað er fyrst og fremst ætluð starfsmönnum með stutta formlega skólagöngu og er fjármögnuð af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
Markmið
- að hvetja starfsmenn til virkrar símenntunar
- að skoða möguleika á færniþróun í starfi eða einkalífi
- að veita einstaklingsmiðaða aðstoð við skoða mögulegar námsleiðir og styrki
- að veita aðstoð við að setja sér markmið í námi og starfi
Með því að fá náms- og starfsráðgjafa í heimsókn á vinnustað geta fyrirtæki stuðlað að frekari símenntun starfsmanna, aukinni starfsánægju og árangursríkri starfsþróun.
Fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að kynna sér þjónustuna og mögulegar útfærslur á framkvæmd hjá ráðgjöfum Mímis.
