Nám í almennum bóklegum greinum byrjar
Nám í almennum bóklegum greinum hentar vel þeim sem byrjuðu í framhaldsskóla og vilja nú klára hann. Námið er 300 kennslustundir og ætlað einstaklingum 23 ára og eldri. Lögð er áhersla á fjölbreyttar kennsluaðferðir og einstaklingsmiðað nám.
Markmið námskeiðsins er að læra íslensku, ensku, dönsku og stærðfræði á framhaldsskólastigi, þjálfa sjálfstæð vinnubrögð og auka sjálfstraust í námi.
Smellið hér fyrir nánari upplýsingar.
