Haustönn 2010


Hægrismelltu á myndina
til að ná í bæklinginn.

Icelandic courses

 
Click to download
course schedule 

Icelandic for foreigners

General information

Ráðgjöf fyrir erlenda starfsmenn

Ráðþegar
Ráðgjafar

Heim  
Vinamót haldið 17. mars n.k. PDF Print Senda

Hvað er kokteilklæðnaður? Hvernig eru eftirréttahnífapör lögð á borð? Á ég að lyfta glasi ef skálað er fyrir mér? Hvernig er hjónum skipað til sætis? Hvað má líða langur tími þar til veitingar eru bornar fram? Hvern á að kynna fyrst? Hvað á að gera við servíettuna ef maður þarf að bregða sér frá?

 

Þessum spurningum og fleirum er svarar söngvarinn og lífskúnstnerinn Bergþór Pálsson af stakri snilld á þessu... 

vinsæla námskeiði sem haldið verður 17. mars n.k. kl. 20:00. Óhætt er að fullyrða að fáir hafa meiri reynslu af því að miðla af þekkingu sinni á þessu sviði en auk reynslu sinnar sem námskeiðahaldari og fyrirlesari hefur Bergþór skrifað feikivinsæla bók um efnið.

Á léttri og skemmtilegri kvöldstund læra allir eitthvað nýtt um hvernig þeir geta látið gestum sínum líða betur s.s. hvernig velja á gesti, boðskort og borðbúnað. Hvernig taka skal á móti gestum og hvernig best sé að skipa þeim til sætis, samræðulist og tækifærisræður, líkamsstöðu og klæðnað, borðsiði og skálaræður og margt fleira sem gerir góða veislu ógleymanlega.

Örfá sæti laus á námskeiðið 17. mars.