Mímir og Efling fá verðlaun
Mími-símenntun og Eflingu hlotnuðust verðlaunin Evrópumerkið í gær, sem er viðurkenning frá Evrópusambandinu fyrir nýbreytni á sviði tungumálanáms og kennslu. Viðurkenningu þessari er ætlað að beina athygli að frumlegum og árangursríkum verkefnum í kennslu erlendra tungumála.
Verðlaunin voru afhent fyrir námskeiðið Yrkju. Markmið námskeiðsins er að rjúfa félagslega einangrun atvinnulausra og koma þeim til virkni, auk þess að styrkja stöðu þeirra á vinnumarkaði. Námskeiðið er ætlað fólki af erlendu bergi brotnu og hefur íslenska mesta vægið af þeim námsgreinum sem kenndar eru. Ennfremur fara þátttakendur í líkamsrækt, dagsferð út á land og einstaklingsviðtöl hjá náms- og starfsráðgjafa. Verkefnið var styrkt af Evrópusambandinu.
Verðlaunin voru afhent í hátíðarsal Háskóla Íslands í gær og veittu þeim viðtöku þau Vala Sigurlaug Valdimarsdóttir, verkefnastjóri hjá Mími-símenntun (fyrir miðju á mynd)) og Atli Lýðsson, fræðslustjóri Eflingar. Ásta Magnúsdóttir (til vinstri), ráðuneytisstjóri Mennta- og menningarmálaráðuneytisins, afhenti verðlaunin.

