Skráning á frístundanámskeið hófst 23. ágúst
Fjöldi námskeiða við allra hæfi

Mímir-símenntun býður upp á mikið úrval frístunda- og tungumálanámskeiða á haustönn 2011.
Af námskeiðum til gagns og gamans má nefna tölvunámskeið, kökuskreytingar og skriðsundsnámskeið. Menninganámskeið eru í boði; að venju er boðið upp á námskeið í smásagnagerð og á námskeiðinu Austurlönd - Að fornu og nýju er varpað ljósi á atburði í Miðausturlöndum.
Boðið er upp á fjölmörg myndlistanámskeið, bæði vatnslita og olíumálun. Hin vinsælu handverksnámskeið eru á sínum stað. Boðið verður m.a. upp á prjónanámskeið og þæfingu, stjörnuhekl, bjölluhekl og rússneskt hekl og saumanámskeið. Nokkur námskeið eru tengd jólahaldi eins og jólakorta- og jólakertagerð.
Fjölbreytt úrval tungumálanámskeiða er í boði á haustönn, allt frá Norðurlandamálum, ensku, þýsku og frönsku til pólsku, rússnesku og japönsku. Boðið er upp á sérstök barna- og unglinganámskeið.
Kynnið ykkur úrvalið! Við bjóðum upp á námskeið við allra hæfi.
Bæklingur yfir frístundanámskeið Mímis á haustönn 2011
