Grunnstoðir - nám fyrir þig?

Viltu auka þekkingu þína og bæta þannig stöðu þína í samfélaginu? Hefur þú átt við lestrarerfiðleika að stríða?

25. jan. 2012

  • skrifa
    skrifa

Nú er að hefjast spennandi námskeið í samvinnu Eflingar og Mímis-símenntunar sem kallað er „Grunnstoðir“  og er 395 kennslustunda nám.

Efni Grunnstoða er samsett úr  námskránum  Aftur í nám og Grunnmenntaskólinn, sem hafa verið mjög vinsælar hjá Eflingarfélögum í mörg ár.

Aftur í nám er ætlað þeim sem glíma við lestrar- eða skriftarörðugleika en Grunnmenntaskólinn er fyrir fólk sem horfið hefur snemma frá námi, hugsanlega vegna lestrar- eða skriftarörðugleika, en vill taka  upp þráðinn.

Margir félagsmenn Eflingar hafa nýtt sér undanfarin misseri til þess að auka menntun sína.
Vinnumálastofnun greiðir þátttökugjöld atvinnuleitenda að hluta eða að öllu leyti.

Við viljum hvetja þig til að kynna þér þetta nýja nám og skoða hvort það gæti hentað þér.

Nánari upplýsingar hér.

 

Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica